B-Besti bekkurinn :)
Könnun
Ætlar þú að mæta á Þjóðhátíð um Verslunarmannahelgina?
Jáhá og það verður sko ekki mín fyrsta!!!
0 atkvæði

Já í fyrsta skipti!
1 atkvæði

Já í mega múnderíngu og fínerí!
0 atkvæði

Ég verð blekuð/aður þarna einhverstaðar :P
1 atkvæði

Nei en mig DAUÐ langar!!
0 atkvæði

Nei og mig langar ekkert!!
1 atkvæði

Nei hef farið áður og það var nóg :(
0 atkvæði

Sé ykkur þar!
0 atkvæði

...á þjóðhátíð ég fer fer fer þar feikna gaman er er er, ég þangað fer með þér þér....
0 atkvæði

NEIHH!
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 4
Myndir af okkur - á annari síðu
16.02.2009 22:19:27 / b-bekkur2006

Fyrirparty


Fyrirársháríðarsokkaparty


Heiða og Þóra bjóða í sokkaparty, allir að mæta í skemmtilegum sokkum :haha:

Mæting 17:03 að Hlíðarvegi 35 kópavogi 20. febrúar 2009 :klikk:

Sokkakveðja Heiða og Þóra 8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.01.2009 13:25:02 / b-bekkur2006

ÁRSHÁTÍÐ

Jæja gott fólk þá er komið að SÍÐUSTU árshátíðinni okkar.

OG VIÐ ÆTLUM ÖLL AÐ MÆTA EKKI SATT???

ÞÁ ER SPURNING HVORT VIÐ GETUM EKKI HAFT MAGNAÐANN HITTING FYRIR HERLEGHEITIN?

ERU EINHVERJIR SEM BJÓÐA FRAM HÚSNÆÐI?





Bergdís, Eyrún, Siggi og Anna

p.s.
kynnið ykkur málin á roskva.hi.is og kjósið rétt!

» 12 hafa sagt sína skoðun

10.12.2008 21:48:51 / b-bekkur2006

Ruby tuesday á föstudaginn kl 18:30

Jæja nú fer að líða að lokum þessarar annar. Vonandi gekk öllum vel í prófum og verkefnum ;)
Við vorum hér nokkrar að spá hvort við ættum ekki að verðlauna okkur aðeins og fara saman út að borða á föstudaginn áður en við förum upp í skóla á próflokadjammið :haha:
Hugmyndin sem komin er upp er að fara á Ruby Tuesday hér í skipholtinu kl 18:30 og fara svo saman upp í skóla.
Er þetta ekki bara málið svona rétt fyrir jól?





» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 12:31:00 / b-bekkur2006

Breyting á húsnæði

Smá oggu ponsu breyting,

Spilakvöldið verður heima hjá mér... Drekavöllum 18 í hringtorgabyggð (Hafnarfirði)

Kv. Guðrún Ben



» 2 hafa sagt sína skoðun

04.11.2008 17:18:48 / b-bekkur2006

Spilakvöld

JÆJA kæru b-bekkjafélagar

Nú er komið að hitting :)

Spilakvöld heima hjá henni ÖNNU okkar (háteigsveginum) á föstudaginn klukkan 8.

ALLIR mæta, engin kvöð um langa dvöl, við viljum bara sjá sem flesta

endilega kommentið svo við vitum hvort við verðum bara þrjár :)

Koma svo, ég veit að við getum hist einu sinni þessa önn :d

Anna, Bergdís og Guðrún


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 17:42:13 / b-bekkur2006

Og þá hefst skólinn á ný

Heil og sæl bekkjarfélagar

Eitt stutt og laggott blogg.
EIGUM VIÐ EKKI AÐ VERA DUGLEG ÞETTA SÍÐASTA ÁR OKKAR HÉR Á "MENNTAVÍSINDASVIÐI HÍ" OG TAKA ÞÁTT Í FÓTBOLTANUM 4. SEPT????????
:haha:



Kv.

Bergdís


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.07.2008 18:06:06 / Irish

Lítil dama:)

Hæ hæ vildi bara láta ykkur vita að litli kúlubúinn er mættur á svæðið:d
Var lítil dama í bumbunni sem mætti á svæðið 4.júlí kl.04:03 í Hreiðrinu.
Var hún 16 merkur og 52 cm.
Hún er algjör draumur, sefur bara og drekkur og lætur ekki hafa mikið fyrir sér:d

Ég er búin að gera barnalandsíðu þar sem að þið getið skoðað prinsessuna betur:d


Kv Íris og litla daman:d

» 9 hafa sagt sína skoðun

02.07.2008 18:21:16 / b-bekkur2006

Þjóðhátíð í eyjum!!!

Jæja nú styttist óðum í hina stórfenglegu Verslunarmannahelgi og allt það sem henni fylgir! Eins og til dæmis Þjóðhátíð í Eyjum!!! :lol:



Það er ekki vandamál að komst til Eyja á þjóðhátíð. Flugfélag Íslands, Vængir sími 481-1100 og Flugfélag Vestmannaeyja eru með loftbrú milli lands og Eyja. Þjóðvegur Eyjamanna, hin glæsilega ferja okkar, Herjólfur, er aðeins tvo og hálfan tíma á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. . Það er ekkert vandamál að ferðast innanbæjar í Vestmannaeyjum um þjóðhátíðina því að rútur og bekkjabílar eru í ferðum allan sólarhringinn.

-www.dalurinn.is - www.herjolfur.is - www.eyjaflug.is -

Ég er búin að fara 3 sinnum og þetta verður fjórða skiptið og ég mæli með þessu :haha:

Ég er farin að hlakka svo geggjað til :P  ætla einhverjir fleiri að skella sér????

Vonandi sé ég ykkur á þjóðhátíð í eyjum.

Kveðja
Anna



» 1 hafa sagt sína skoðun

02.07.2008 17:46:22 / b-bekkur2006

Salka Valka - umræður

Jæja góðir hálsar! :þ

Nú eru kannski sumir að verða búnir með bókina. Set hér inn póst fyrir umræður en það væri skemmtilegast ef allir fengju að klára. Allir sem voru með þurfa að láta vita þegar þeir eru búnir.

Tjáið ykkur!

Kveðja
Anna 8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 22:49:48 / b-bekkur2006

Sex and the City bíóferð??

Bara smá uppástunga, erum við til í hópferð á Sex and the City bíómyndina eða bara einhverja aðra mynd???? Væri nú gaman að skella sér saman í bíó eitt kvöldið bara svona til að sjá framan í hvort annað í hléinu ;)

Tjáið ykkur...

Kveðja
Skemmtinefnd


» 23 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 12:09:34 / b-bekkur2006

Umræður - Loforðið

Jæja unga fólk
Nú hefjast umræður um bókina
Loforðið!

Orðið er ykkar!


» 22 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 19:42:00 / b-bekkur2006

ÞAÐ ER KOMIÐ SUMAR!!!!!

Jæja litlu kútarnir mínir :d Þá er sumarið komið til okkar og margir flúnir í sumarfrí á meðan aðrir demba sér í vinnuna 8) Það er nú samt gott að vinna á sumrin til að gefa lífinu smá tilbreytingu og ég tala nú ekki um til að eignast kannski smá aur fyrir bókunum í haust ;)

Við getum nú samt reynt að vera í sambandi og eru ýmsar hugmyndir á lofti...

  • Auðvitað er Bókaklúbburinn Jóhannes efst á listanum og við lesum saman í sumar :haha:
  • Road trip til Akureyrar yfir helgi að heimsækja Siggu Ástu
  • Útilega með öllu tilheyrandi (þarf ekkert að fara langt frá Rvk)
  • Djammin partners (allir að vera í bandi þegar þeir fara á djammið)
  • Annað partýhald er alltaf vinsælt (ýmis tilefni í boði)
  • ALLAR HUGMYNDIR eru teknar til skoðunar :!:
Jæja krúttin mín annars langaði mig bara að óska ykkur gleðilegs sumars......

Sumarkveðjur
Skemmtinefnd


GLEÐILEGT SUMAR

B-BEKKUR!!!!!



....OG TIL HAMINGJU MEÐ PRÓFLOKIN ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 19:49:31 / b-bekkur2006

Bókarklúbbur fyrir bókaorma

Jæja börn

Þá er komið að því... Bókarklúbburinn Jóhannes er að stíga fram í dagsljósið 8)

Fyrsta bókin sem lesin verður er Loforðið eftir Hrund Þórsdóttur
Bókin var valinn besta sagan í samkeppninni um íslensku barnabókaverðlaunin 2007.

Ásta og Eyvör. Eyvör og Ásta. Þær voru alltaf saman. Þær voru óaðskiljanlegar og ef einhver nefndi nafn annarar fylgdi hitt iðulega á eftir. Svona hefur þetta verið en nú er það búið. Eyvör er farin. Hún er dáinn og samt var hún bara nýorðin tólf ára.

Bókarklúbburinn virkar þannig að hver sem er í þessum yndislega bekk getur verið með. Eina sem þarf að gera er að skrifa smá komment á hverja færslu með nafni og segja bara eitthvað skemmtilegt. Að lestri loknum kvitta allir síðan aftur til að umræður um bókina geta hafist. Sá sem vill blogga gerir það og þetta er allt mjög frjálst :)

Stelpur ef þið viljið bæta einhverju við þetta, gerið það annars held ég að þetta sé bara nokkuð skiljanlegt.

Þegar umræður um bókina eru búnar er ný bók valin og svona ætlum við að láta þetta ganga í sumar og vonandi næsta vetur líka :haha:

Endilega verið með, það er svo miklu skemmtilegra og bara skemmtilegt að halda sambandi án áfengradrykkja ;)

Bestu kveðjur
Stofnendur Bókaklúbbsins Jóhannesar

» 24 hafa sagt sína skoðun

19.04.2008 10:24:40 / b-bekkur2006

Partý og co.

Jæja dagurinn sem allir hafa beðið eftir er runninn upp :haha:

Partýið verður heima hjá mér, Bergdísi stuðbolta, í Grafarholtinu - Kapellustíg 1. Þar sem gatan er ekki á skrá í símaskránni þá víl ég benda á að þið getið flett upp Klausturstíg sem er gatan við hliðiná.

Þetta er staðsett neðst í Grafarhotlinu (út í sveit) og þetta eru rauðar og gráar gámablokkir :)

sjáumst hress elskurnar mínar

Bjúlla
8)

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Textabox
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 16 febrúar